Sex Augu, Tólf Stjörnur
IS

Letra de Sex Augu, Tólf Stjörnur

GéneroMetal
Duración10:52
Idioma originalIS
Vistas29
AaLectura
Tamaño 18

Letra original

IS
La traducción todavía no está disponible. Mostramos la letra original.
Sex augu, tólf stjörnur Með himinþokur milli fingra sér Sveipaður myrkri og harmi Drukknandi augu synda yfir það sem fyrir ber Leifar fjarlægra drauma finnast undir isilögðum sjáöldrum Berjast þær sýnir um að komast upp a yfirborðið Vaki þú hyldýpi óskylt takmörkunum holdsins Leyf okkur að hvíla í faðmi þinum Að þekkja ásjónu vítislogana Allar þessar óteljandi tennur ÞÍnar sálhreinsandi hvítu klær Klórandi Fálmandi Eftir hlutdeild í tilveru utan líkama Sú óendandi þjáning Hve við þráum að þekkja form hennar Að samtvinnast greipum logans Yfirstíga eðju holdsins Að svífa Fuðra upp Enda Eilíft líf Bjögun hins illlýsanlega sjálfs Orðin eru bitur lofsöngur Og munnur okkar fullur af glerbrotum Án andgiftar Gleyptar hafa verið ófáar tennurnar Ódauðleg prísund umlykjandi Aðgangur að djúpunum; hylling Vonarglætan kæfð Brenni þeir útlimir ófærir um að slá frá sér Rotni það hold af beinum sem getur ei brunnið Megi þessir tónar sveipa af hulunni þEtta verk hreinsa burt sköpunarverkið Megi uppljómum tendrast í hugum allra Megi allt sem er Vera ei meir Hent inn í óseðjandi hreinsunareldinn Ráðgáturnar leystar og dauðinn eina frelsunarorðið Frelsuð frá tilveru Andinn dreginn á brott Við sjáum pyttinn Ginnungargap ofar öllum skilningarvitum Líkama kaffærða í óyfirstíganlegum refsingum Endi allra ferðalaga Við heyrum sársaukaópin ÞÆr fjarlægu raddir sem klifra upp hallarsalina Við lifum í draumaheim Sársaukinn vekur ei Fingur titra, augun grípa í tómt Litir renna saman í eitt Móðan smýgur sér í öll vit Við erum bundinn í dróma Klædd sólinni Himneskum eldi Engin leið út

Más de Wormlust

Wormlust →

Letras relacionadas