Mamma þarf að djamma
IS

Paroles de Mamma þarf að djamma

GenrePop
Langue originaleIS
Vues24
AaLecture
Taille 18

Paroles originales

IS
Traduction indisponible. Les paroles originales sont affichées.
Mamma er enn í eldhúsinu, úh, úh, úh Uppgefin á þessu og hinu, úh, úh, úh Teygir sig í kampavínið, kælir það í drasl Á klaka setur vandamálin, áhyggjur og basl Spyrðir sig í sparigallann, úh, úh, úh Sparslar fésið, reyrir mallann, úh, úh, úh Mamma þyrfti að sofna því mamma er svo þreytt En mamma landar engum þorskum sofi hún út í eitt Mamma, mamma ætlar að djamma Fá sér nýjan vin Mamma, mamma ætlar að djamma Elsku kerlingin Svo ljúfsárt getur lífið verið, úh, úh, úh Hún losar sig við krakkagerið, úh, úh, úh Rauðum vörum litar glasið, lakkar tásurnar Lyftir barmi, þarf að toppa hinar pjásurnar Af lymsku skal nú lagt á ráðin, úh, úh, úh Hvar leynist skársta næturbráðin? Úh, úh, úh Stundum er hún heppin en oftast fer allt í fokk Þá fer hún heim með öskupöddufullann drullusokk Mamma, mamma ætlar að djamma Til í tuskið er Mamma, mamma ætlar að djamma Ein með sjálfri sér Fengitíminn löngu liðinn, úh, úh, úh Lokametrinn skal þó skriðinn, úh, úh, úh Þó óbeislaðar gamlar merar ættu að brokka heim Það eru engir prinsar eftir til að brynna þeim Mamma, mamma ætlar að djamma Hún á engan mann Mamma, mamma ætlar að djamma Það eina sem hún kann Mútta, mútta ætlar að tjútta Elsku kerlingin Mútta, mútta ætlar að tjútta Og finna í þetta sinn Nýja pabbann þinn

Plus de Yohanna

Yohanna →

Paroles similaires