Á Altari Meistarans
IS

Á Altari Meistarans 歌詞

ジャンルMetal
時間6:06
原文言語IS
閲覧数12
Aa表示設定
文字サイズ 18

原文歌詞

IS
翻訳はまだありません。原文を表示しています。
Aldauði og gnístur tanna þÚ hefur vakið meistarann Lagt er á höfuð hans ennisdjásn; líkneski dýrsins Skarlatsrautt -purpurar gimsteinar perlur Á altari meistarans er gullbikar fullur viðurstyggðar Brimfullar eru þessar skálar reiðinnar Hann drekkur þjáninguna þína og árvökul á þér eru hans augu Athygli hans jafn voðaleg og rödd ofan úr gröfinni Sú rödd sem lúðrablástur Herlúðrar hljómandi úr kosmískum fjarska Hann gerir hreiður úr iðrum þínum Tómarúm úr hjarta þínu Hann er klæddur sólinni og virðist snertur af eldi Umlykjandi skuggar líkastir grimmu svartnættinu Táknin þau öll öskra að seiðurinn hefur verið rofinn Að lyklar undirdjúpanna hafi á svipstundu umbreyst í hlekki Altarið sem þú hafðir ætlað sem fangelsi hefur orðið þín eigin gröf

Wormlust の他の曲

Wormlust →

関連歌詞