Höndin Sem Veggina Klórar
IS

Höndin Sem Veggina Klórar 가사

앨범Sorgir
연도2018
장르Metal
길이6:39
원문 언어IS
조회수40
Aa읽기 설정
글자 크기 18

원문 가사

IS
번역이 아직 없습니다. 원문 가사를 표시합니다.
tunglskinsbjört nóttin er tökum náðir tveir liggja bræður og sofa báðir móðirin vakir og ljósið líður lognið er forleikur þess sem bíður fjórtán á bænum, við brunnum inni börnin í fangi á ömmu sinni fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar lítil er höndin sem veggina klórar mannleysa og ber að baki bræðralaus og einskis maki lögðum eld að þínu þaki fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar lítil er höndin sem veggina klórar haf- er yfir horfði örn herinn sá við bæjartjörn saklaus inni brunnu börn fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar lítil er höndin sem veggina klórar sonur minn vaknaði aldrei aftur ekki komst dóttir mín litla á legg brunninn var fótur og brostinn kraftur bærinn féll saman og á mig raftur þá á mig sóttu loks þvogl og órar þarna ég dó undir baðstofuvegg fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar lítil er höndin sem veggina klórar sviðnar hönd og hold hitnar undir mold eldur brennir bein bræðir óskastein sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn suðar yfir mý og litar ferskan blæinn ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna enginn segir frá og hvers er þá að sakna? sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn suðar yfir mý og litar ferskan blæinn ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna enginn segir frá enginn segir frá enginn segir frá sviðnar hönd og hold hitnar undir mold eldur brennir bein bræðir óskastein sviðnar hönd og hold hitnar undir mold eldur brennir bein bræðir óskastein

Skálmöld의 다른 곡

Skálmöld →

관련 가사