Miðgarðsormur
IS

Miðgarðsormur 가사

앨범Börn Loka
연도2013
장르Metal
길이6:54
원문 언어IS
조회수686
Aa읽기 설정
글자 크기 18

원문 가사

IS
번역이 아직 없습니다. 원문 가사를 표시합니다.
Sjórinn rauður sýður. Í sortanum hann bíður. Dagrenning og dauðastormur, Í djúpinu er miðgarðsormur Gakktu út a gróinn núp, Gáðu hvað hann mun prýða undirdjúp. Þarna yfir sjó og sand sérðu áfram líða jörmungand. Mæli ég því mikill er, miðgarðsormur þræðir lönd og sker. Hann sem mig skal hitta vill hörfa þegar blæðir, kjarklítill. Renni ég færinu fyrsta sinni, Festi við þóftu í kænu minni. Annað sinn kasta, hann ekki bítur, Ósnertri beitunni loks upp skýtur. Höfuð nautsins himinhrjóðs hilmar ormi færir, ei til góðs. Banvænn sýnist bitinn þó blóðið gandsins ærir hugarró. Fylgja mun þér fegurð, ef fellir orminn langa, sérhvert skref. Eiturgusa æta má asjónu og vanga, tapi sá. Þriðja sinn kasta og þá hann tekur, Þóftuna mölvar og bátinn skekur. Færið skal dregið af fullum krafti, Fátækleg hönd móti ormsins kjafti. Reipið sker, gatar glófa, Gegnum fer, særir lófa. Krókur í kjaftinn rífur, Krækjan því sker sem hnífur Áfram þeir berjast báðir, bræður tveir, þreyttir, þjáðir. Takast á, tíminn líður, tengir þá strengur stríður. Höfuðið birtist í hafsins róti, heggur í bátinn og streitist á móti. Blaðinu sting svo að blóð út stekkur, bölvandi skepnan í hafrótið sekkur. Þegar hitti þór, þá munum við berjast. Staðfastur og stór, standa mun og verjast. Agnið beit víst á, ásgarður mig svíkur. Jörmungandur, já, ég er sá sem víkur. Báru klýfur bátur Og bátsmaður er kátur. Landið tekur, fleyið festir, Þar fljúga yfir nokkrir þrestir. Aftur skepnan skríður Í skjól og þar hann bíður Létti til og lægði storminn Er lagði hilmar miðgarðsorminn.

Skálmöld의 다른 곡

Skálmöld →

관련 가사