Níðhöggur (feat. Baldvin Kristinn Baldvinsson)
IS

Níðhöggur (feat. Baldvin Kristinn Baldvinsson) 가사

앨범Ýdalir
연도2023
장르Metal
원문 언어IS
조회수41
Aa읽기 설정
글자 크기 18

원문 가사

IS
번역이 아직 없습니다. 원문 가사를 표시합니다.
Kveður vísu draumadís Dagur rís í frosnum móanum Króknar sálir kveikja bál Kneyfa skal og syngja með spóanum Þegar hitinn þíðir vit Þykkur biti fyllir magana Hér á bóga báða nóg Breiður skógur umlykur hagana Ýviður er í boga bestur Beittar tálgum eiturörvar Níðhöggur, sá grimmi gestur Gefur eftir, flýr og hörfar Dregin erum, fuglinn fer Fram hjá sveru urðargrjótunum Gegnum stríða hörkuhríð Höfum skíðin bundin á fótunum Öllu gleymum, horfum heim Hann þar sveimar einn með skörfunum Bogar svigna, lækur lygn Látum rigna yfir hann örvunum Flýgur inn með fuglager Feigðareldur bjartur logar Grandað enginn getur mér Geiga allir þínir bogar Skíðar yfir skaraband Skalt þú núna deyja, ullur Dalir þínir draumaland Dauðinn verður tregafullur Skörp er lund og skelfur grund Skíðum undir klakaflekanum Víð þar brjótum væng og fót Vinir skjóta hart að drekanum Óðum drekans eyðist þrek Undir tekur fjalls í sölunum Heyrist gnýr og höggur flýr Hrakti ýr hann burtu úr dölunum Ýr í dölunum

Skálmöld의 다른 곡

Skálmöld →

관련 가사