Sleipnir
IS

Sleipnir 가사

앨범Börn Loka
연도2013
장르Metal
길이6:28
원문 언어IS
조회수260
Aa읽기 설정
글자 크기 18

원문 가사

IS
번역이 아직 없습니다. 원문 가사를 표시합니다.
Reiðskjótinn okkar er reisulegt hross, Runnin úr ásgarðI er hann. Skjannhvítt faxið er skínandi foss, Hann skeiðar við reiðar. Áttfættur fákurinn æðir um jörð, Alföður hnarreistur ber hann. Hermanni verða þá hæðir og börð Og heiðar vel greiðar. Og hann mun mig bera á baki sér, Við berumst um vegi sem enginn fer. Klárinn er þýður og kræfur og stór, Krafturinn tekur fram vonum. Gáir þó að sér, er gæfur og rór, Um gjótur er fljótur. Aldrei hann sligast og engan hann slær, Sleipnir er nafnið á honum. Alls enginn fjandmaður sitja hann fær, Hans fótur er skjótur. Nú fljúgum við léttir um loftin blá, Hve landið er fagurt og margt að sjá. Hann viljugur ber mig á baki sér, Við brynhildur förum hvar enginn fer. Ríða, rokka, róta, reiða, Líða, lokka, ljóta leiða. Blíða, brokka, blóta breiða, Skríða, skokka, skjóta skeiða. Skeiða, skokka, skríða, Breiða blóta, brokka, bíða. Leiða ljóta, lokka, líða, Reiða, róta, rokka, ríða. Ríða um slóða og róta hvern metra, Líða með góðum, ljóta skal betra. Bíða uns slotar og blóta við eldinn, Skríða í hnakk fararskjóta á kveldin. Skeiða á klárnum og skokka um heima. Breiða út faðminn og brokka og dreyma, Leiða þá sáru og lokka svo fjendur, Reiða loks stúlku og rokka um lendur.

Skálmöld의 다른 곡

Skálmöld →

관련 가사