Ullur
IS

Letra de Ullur

ÁlbumÝdalir
Ano2023
GêneroMetal
Idioma originalIS
Visualizações38
AaLeitura
Tamanho 18

Letra original

IS
A tradução ainda não está disponível. Exibindo a letra original.
Ýdalir standa við fagurt fljót Fjörðurinn brosir okkur mót Ullur þarna býr Vorið er komið, veturinn fer Vindurinn fallega kveðju ber Vakir yfir Ýr Dáinn horfir inn dalinn á fuglafjöld Dvalinn liggur og sefur því nú er kvöld Duraþrór og Duneyrr bíta Dásamlegt er allt á að líta Ullur þarna býr Örlaganornir við Urðarbrunn Ýdali byggja á traustan grunn Ullur þarna býr Urðar fer stækkandi völundarvefur Verðandi brosir en Skuld, hún sefur Vakir yfir Ýr Dáinn horfir inn dalinn og allt er hljótt Dvalinn liggur og sefur því nú er nótt Duraþrór og Duneyrr bíta Dásamlegt er allt á að líta Ullur þarna býr Örlaga- og álfamær Dansaðu við mig í nótt Enginn veit hver örlög fær Dansaðu við mig í nótt Líttu upp því lífið er hér Láttu þig dreyma og komdu með mér Örlaga- og álfamær Dansaðu við mig í nótt Lítið eigum leyndarmál Dansaðu við mig í nótt Eigðu með mér eina skál Dansaðu við mig í nótt Líttu upp því lífið er hér Láttu þig dreyma og komdu með mér Lítið eigum leyndarmál Dansaðu við mig í nótt Fögnum meðan finnum til Dansaðu við mig í nótt Þessa stund með þér ég vil Dansaðu við mig í nótt Líttu upp því lífið er hér Láttu þig dreyma og komdu með mér Fögnum meðan finnum til Dansaðu við mig í nótt Leikum okkur lítið eitt Dansaðu við mig í nótt Og við verðum aldrei þreytt Dansaðu við mig í nótt Líttu upp því lífið er hér Láttu þig dreyma og komdu með mér Leikum okkur lítið eitt Dansaðu við mig í nótt

Mais de Skálmöld

Skálmöld →

Letras relacionadas