Múspell
IS

Текст песни Múspell

АльбомVögguvísur Yggdrasils
Год2016
ЖанрMetal
Длительность5:41
Язык оригиналаIS
Просмотры39
AaНастройки чтения
Размер текста 18

Оригинальный текст

IS
Перевод пока недоступен. Показан оригинальный текст.
kvika streymir og kraftar losna klettar brenna barnið dreymir en taugar trosna tárin renna bráðna steinar og bergið flýtur brostnir draummar ljósið veinar og loginn hvítur landið kraumar bálið sem veldur bardögum bjarma á kveldið kastar surtur fer heldur hamförum hér sefur eldur fastar jötnar æða um jörð í molum jöklar gráta ísinn bræða á æstum kolum æpir hnáta móðir huggar þar mædda dóttur múspall fagnar dansa skuggar er dofnar þróttur dagur þagnar þú deyrð í nótt! himinninn er hulinn sóti hraunið rennur okkur móti svartnætti til allra átta illt er myrkur múspellsnátta finnum hvernig fætur svíða feigir eftir okkur bíða saman munum lífið láta lítil rödd er hætt að gráta ryðst úr sprungum, gjám og gjótum gríðarbál í risafljótum loki gefur lausan tauminn leikur sér við stríðan strauminn liggjum við á litlu skeri lyftist glóðin nær sárt að hérna beinin beri barnung dóttir kær loks ég finn að lítill skrokkur lætur eftir sitt hraunið breiðir yfir okkur elsku barnið mitt

Ещё от Skálmöld

Skálmöld →

Похожие тексты