Friðþæging Blýþungra Hjartna
IS

Friðþæging Blýþungra Hjartna کے بول

صنفMetal
دورانیہ6:49
اصل زبانIS
مناظر58
Aaپڑھنے کی ترتیبات
متن کا سائز 18

اصل بول

IS
ترجمہ ابھی دستیاب نہیں۔ اصل بول دکھائے جا رہے ہیں۔
Dans örvinglaðra anda undir festingu fjörvana stjarna. Ellin dregur dauðann á langinn. Aðframkomið hold verður frjóvgandi mold fyrir ættliði volaðra ævidaga. Þeir þrá að sleppa frá eymd sinni en stjörnurnar reynast of fjarlægar… Ættliður helgra afglapa, velkist í frelsarans nafni. Hátt stíga eldar í neðra, uppljómun morugra hvela. Tár iðrunar falla til fóta, friðþæging blýþungra hjartna. Fár volaðra lima og anda, skuggsjá hins himneska Herra. Vonin smýgur þeim úr greipum, uppljómun spírals blýþungra hjartna óslitin hringganga helgispjalla um ókomna tíð. Aðframkomið hold verður frjóvgandi mold fyrir ættliði volaðra ævidaga. Eldur, hlána, járn, kal og þreifandi myrkur er það sem koma skal.

Misþyrming کے مزید گیت

Misþyrming →

متعلقہ بول