Ódýr
IS

Ódýr 歌词

流派Punk Rock
时长4:55
原文语言IS
浏览量141
Aa阅读设置
文字大小 18

原文歌词

IS
暂时没有翻译,当前显示原文歌词。
Árin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnu Þau safnast saman á haugum brostinna drauma Þú lítur til baka og hugsar Afhverju seldi ég mig Ekki fyrir meira? Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka Þú lítur til baka og hugsar Afhverju seldi ég mig Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við að ljúka Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo að enginn kærir sig um minningu þína Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku Ég fel mig undir laki Sem kuldinn hefur þakið Nóttin starir þögul Hún segir lygasögur Tómið svífur að mér Berleggjaður berst é Banasæng ég bý mér Banasæng ég bý mér Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir Afhverju seldi ég mig Ekki fyrir meira?

更多 Hatari

Hatari →

相关歌词