Ásgarður
IS

Ásgarður 歌词

专辑Vögguvísur Yggdrasils
年份2016
流派Metal
时长5:44
原文语言IS
浏览量40
Aa阅读设置
文字大小 18

原文歌词

IS
暂时没有翻译,当前显示原文歌词。
einherjar streyma frá iðavelli enginn gaf líf sitt við leikinn í dag flétta í dróttkvætt og fornyrðislag fimlegar vísur um gnipahelli þurrka af sverðunum bleksvart blóðið brynjunum kasta í drekkingarhyl hreinsa og strjúka og hrista svo til hungraðir allir, svo inn þeim bjóðið glaumurinn berst yfir gang til okkar goðin þar sitja og drekka sinn mjöð yggdrasils skýla þér bolur og blöð bardagaherir og stórir flokkar þagnaðu, anginn og þægur vertu þú ert af ása og konungaætt fátt er þar úti sem fær okkur hrætt freyja þín gætir svo hólpinn ertu ef ég þessu ljóði lyki líklega við heyrðum köll horfir hann frá breiðabliki baldur, yfir okkur öll valhallar blæs til vindurinn veinandi hvæs og brestir heimdallur læsir hingað inn hér sofa æsir mestir sofðu nú lengi og sofðu vel sængin er dýrasti dúkur geymi þig óðinn og gleymd sé hel gullsleginn svæfillinn mjúkur fegurðin, gáfur og þokki þinn þykja mér feykinæg borgun vættirnar geymi þig, vinur minn við sjáumst aftur á morgun

更多 Skálmöld

Skálmöld →

相关歌词