Ýdalir
IS

Ýdalir 歌词

专辑Ýdalir
年份2023
流派Metal
原文语言IS
浏览量50
Aa阅读设置
文字大小 18

原文歌词

IS
暂时没有翻译,当前显示原文歌词。
ýdalir standa við endalaust fljót ullur þá reisti og byggði fjallgarður skýlir og fjörður í mót fallegt hvert strá, sérhver þúfa og grjót þúsundir búa og þakka hvert dægur þjóð sinni hamingju tryggði ullur er guðlegur, fagur og frægur forgöngumaður og dómari vægur bundin að engu þar bjuggu í friði bændur sem enginn styggði ræktuðu landið og rótgróna siði ríkti þar ullur með fylgdarliði rænt hefur ýdölu níðhöggur nú nístandi grætti og hryggði runnu þau öll yfir brennandi brú börnin í ofboði, ullur og hjú ýdalir standa við endalaust fljót ullur þá reisti og byggði fjallgarður sviðinn, um fjörð liggur sót fallið hvert strá, sérhver þúfa og grjót flaug yfir hljóðlátur, fólkið í bóli feigðin á borgina skyggði vakti þau óður með ísköldu góli ullur þá flúði af höfðingjastóli finndu þeim skjól, sonur sifjar sorfinn í tímann skurður vega þær vandlega klyfjar verðandi, skuld og urður

更多 Skálmöld

Skálmöld →

相关歌词