Nón
IS

Nón 歌词

专辑Ótta
年份2014
流派Metal
时长7:48
原文语言IS
浏览量226
Aa阅读设置
文字大小 18

原文歌词

IS
暂时没有翻译,当前显示原文歌词。
Sólbrot yfir nátthaga læðist sifji nætur, stelur minni sálarró Þögnin þung sem blóð brestur tónn eitt sinn fagur Kyrrð í vetrarríki Myrkrið mýkir glætan gul gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný nóttin þung sem blý Fönnin kæfir sumarilm Vetur tekur yfir Vonin kom með vorinu en lifði ekki lengi hér á Góumánuðum dó í ánauðum stoltið drap þá veiku von Kyrrð í vetrarríki Rökkvar yfir lífi okkar úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin hjartans vorboðinn nú grafin er í fönn Vetur tekur yfir Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig? Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn? Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið Drápu niður fæti illar draumfarir Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð

更多 Sólstafir

Sólstafir →

相关歌词